Laugardagur 17. október, 2026
8.8 C
Reykjavik

Aldurinn á ekki að stjórna hverju þú klæðist – „Ekki tala niður til sjálfrar þín“.

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ekki vera of upptekin af aldrinum þegar kemur að því að velja klippingu, fatnað eða farða.
Margar konur falla í þá gryfju að bera sig saman við sjálfa sig þegar þær voru ungar og reyna keppast við að fá það útlit aftur. En líkaminn og útlit okkar breytist með aldrinum og lítið við því að gera, annað en að fagna því að fá að þroskast.

Á vefnum Lifðu núna eru listuð upp nokkur góð ráð af síðunni health.com sem snýr að fatnaði og framkomu.

„Ekki tala niður til sjálfrar þín. Ekki tala um það hversu gömul þú lítir út fyrir að vera. Að vera innan um fólk og tala um hversu gamaldags klæðaburður þinn er dregur aðeins athygli annarra að aldri og útliti manns.“

Forðastu samanburð

Þú skoðar ekki myndir af sjálfum þér frá því að þú varst barn og undrast yfir því að hafa breyst. Þú átt ekki heldur að undrast yfir því að hafa breyst á síðustu tíu árum. Útlit okkar breytist óhjákvæmilega með aldrinum. „Ekki rembast við að líta út eins og þú gerðir fyrir 30 til 40 árum, vertu frekar konan sem fólk segir að líti betur út nú en hún gerði þegar hún var yngri.“

Sítt hár fer hinni 71 árs gömlu Meryl Streep alltaf vel

Tekið er sem dæmi að oft þyki fólki hárgreiðslur vera aldurstengdar. Eftir að ákveðnum aldri sé náð sé til dæmis ekki passandi að vera með sítt hár og þar fram eftir götunum. „Hár hæfir einfaldlega líkamsgerð og líkamsgerð er mjög svo mismunandi þannig að “sömu reglur fyrir alla” gilda þar af leiðandi ekki.“

Ert þú í réttri stærð af brjóstarhaldara?

Talið er að um 80% kvenna velji ranga stærð af brjóstahaldara. Gott er að fara reglulega í mælingu, til þess að fylgjast með hver rétt brjóstarhaldarastærð er, því hverfandi líkur eru á því að kona noti alla tíð sömu stærð.
„Rétt nærföt  sem passa eiganda sínum geta haft mikil áhrif á það hvernig önnur föt fara.“

- Auglýsing -

Farði sem passar þinni húðgerð

Húðgerð getur einnig tekið miklum breytingum og því er best að gæta þess að nota ávalt farða sem passar þörfum húðarinnar hverju sinni.
Litur sem þér þótti eitt sinn ekki passa þér gæti sömuleiðis farið þér vel núna. Prófaðu því reglulega nýja liti á augu, kinnar og varir og sjáðu hvað þér finnst.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -