Fimmtudagur 8. október, 2026
7.8 C
Reykjavik

Ævar þakklátur því að vera á lífi: „Var að tala við Ásu mína og sá ekki nema hálft andlitið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ævar Austfjörð er því guðs lifandi feginn að vera til frásagnar eftir skyndileg veikindi sem læknar áttu erfitt með að skýra.

Ævar segir frá erfiðri reynslu sinni í færslu á Facebook. Um leið og einkennin byrjuðu að koma fram vissi hann að eitthvað alvarlegt væri í gangi.

„Ég varð var við sjóntruflanir þannig að ég missti sirka hálft sjónsviðið þ.e. ég sá eiginlega ekkert sem var til hægri við mitt sjónsviðið. Ég var eitthvað að tala við Ásu mína og sá ekki nema hálft andlitið á henni. Þegar ég svo hringdi í 112 átti ég í vandræðum með að gefa upp heimilisfangið mitt. Ég vissi það og sá það fyrir mér en gat bara ekki sagt það.“

Ævar segir þjónustu spítalans vera upp á tíu.

Þegar hér var komið við sögu var Ævar keyrður á bráðamóttöku. „Þar var ég strax skoðaður hátt og lágt og mér sagt að þetta væri mjög líklega eitthvað sem kallast blóðþurrð í heila,“ segir Ævar sem daginn eftir var sendur í ótal rannsóknir. „Það var hengdur á mig hjartasíriti og tekið úr mér blóð. Ég er semsagt búinn að fara í allskonar sjónpróf og sjónsviðsmælingar, röntgen á heila og hálsæðum hjartaómskoðun gegn um vélinda MRI skanna á heila og sennilega er ég að gleyma einhverju.“

Rannsóknir skiluðu á endanum þeirri niðurstöðu að opið væri á milli hjartaloka hjá Ævari. Síðar kom í ljós öllu alvarlegra þar sem nokkuð skorti upp á raftaugaboð til hjartans þannig að það hægir á sér og stoppar jafnvel.

„Mér var sagt að eina nóttina nóttina hafi hjartað stoppað í 6 sekúndur og fyrstu nóttina eftir að ég lagðist hér inn í hjartasírita fór púlsinn niður í 24 slög á mínútu! Þetta getur með tímanum leitt til þess að púlsinn verður hreinlega of hægur eða pásan of löng og eigandi hjartans sofnar svefninum langa,“ segir Ævar sem segir lækna eiga erfitt með að skýra út orsökina. Hann vonast eftir útskrift fljótlega en þarf að hafa hægt um sig í einhvern tíma á eftir:

- Auglýsing -

„Ég hef ekki fundið neitt fyrir þessari leti í hjartanu og það aldrei haft áhrif. Þetta er vel þekkt en orsök er ókunn skilst mér. Gæti þess vegna hafa verið svona frá fæðingu án óþæginda. Ég er því afskaplega þakklátur fyrir að hafa fengið þessa litlu blóðtappa því annars hefðu þessar rannsóknir ekki farið af stað.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -