„Hvað eru foreldrar að hugsa, eða hugsa ekki? Er ykkur sama um börnin ykkur? Ætlið þið ekki að vakna fyrr en það verður stórslys eða jafnvel dauðaslys?“
Guðrún nokkur íbúi Mosfellsbæjar er vægast sagt rasandi yfir því að foreldrar séu að leyfa börnum sínum að ferðast um á rafmagnshlaupahjólum.
Hún skrifar inn á Facebook hóp bæjarins og segir börn æða um og yfir götur á þvílíkum hraða að bílstjórar hafi ekki tækifæri til að sjá þau fyrr en þau eru komin fyrir framan bílinn. Samkvæmt Guðrúnu hefur oft ekki mátt muna miklu að slys hafi orðið.
„Börn undir 12 til 14 ára aldri hafa bara ekki þroska til að stjórna þessum tækjum í umferðinni, segir Guðrún og vill meina að mun skárra sé að hafa börn á reiðhjólum. „Vonandi vaknið þið áður en það gerist eitthvað hræðilegt.“
Grétar nokkur skrifar: „Þetta eru stórhættuleg tæki í höndum óharðnara unglinga. Fyrir stuttu var ég á gangi á göngustíg, kom að merktri gangbraut sem ég hugðist fara yfir. Sneri til hægri, en í sömu svifum kom ung stúlka á svona skútu og nánast ók yfir tærnar á mér. Engin viðvörun gefin. Þarna vantaði líka að stúlkan vissi að það er farið framúr vinstra megin. Það þarf að kenna þessum blessuðum börnum einföldustu umferðarreglur og að gera vart við sig þegar nálgast er gangandi vegfarendur. Þetta er, að mínu mati, á ábyrgð foreldra, þeirra er ábyrgðin.“
„Ég er leiðinlegi pabbinn og mínir fá ekki svona. Þeir fá góð hjól en ekki þessi tæki, allt of hættulegt. Svo hafa þeir gott af hreyfingunni sem hjólin veita,“ skrifar Ólafur.
Annar skrifar: „Þetta er bara alveg satt. Lenti í þessu um daginn. Var að beygja á gatnamótum og búinn að líta til beggja hliða og ætlaði að beygja inn á götuna þegar á að giska 11 -12 ára stelpa kom þjótandi á rafmagnshlaupahjóli og var næstum búin að fara í hliðina á bílnum mínum.“
Jóhann skrifar: „Þetta er hárrétt hjá þér vinkona, en því miður þá er það einhver vegin þannig að við virðumst ekki vakna fyrr en of seint í þessum málum. Það væri fróðlegt að sjá hversu margir hafa lent í því að fara næstum því á barn sem kemur þjótandi út úr myrkrinu og bílstjórinn rétt sleppur við að fara á viðkomandi. Sjálfur lent 2 sinnum í þessu og í annað skiptið 2 krakkar á hjólinu.“
Þröstur nokkur kemur inn í umræðuna og vill einnig ræða hve varasöm vespunotkun barna sé. En þetta er ekki í fyrsta skipti sem glæfralegur vespuakstur barna hefur verið gagnrýndur.
„Getum við líka rætt aðeins um vespurnar? Ég er alltaf að sjá hjálmlaus börn saman á bensín vespum, akandi upp og niður eftir öllum göngustígum og göngubrúm með tilheyrandi hættu og hávaða. Ég þekki ekki þessi börn og finnst ekki viðeigandi að stöðva þau, hvað þá þegar þau eru á flegi ferð, en þau eru augljóslega að aka um á bifhjólum án réttinda og án nokkurs öryggisbúnaðar, þetta er bara tímaspursmál og ég biðla til allra foreldra að ræða við börnin sín og mögulega selja vespur af heimilum.“
Sjá einnig: Litlu mátti muna hjá Karli í Langholtshverfi: „Ég NAUÐHEMLAÐI og hann rétt slapp“

