„Það hefur verið í mörg horn að líta á vaktinni hjá okkur, en meðal annar hefur verið haldið úti öflugu eftirliti með ölvunar- og fíkniefnaakstri“ segir í færslu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu:
„Af þeirri ástæðu voru tæplega 400 ökumenn stöðvaðir við eftirlit lögreglu á Skólavörðuholti og reyndust tveir þeirra ölvaðir.“
Kemur fram í færslunni að „frá því síðdegis og fram yfir miðnætti hafa sjö aðrir ökumenn verið teknir fyrir ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur víða í umdæminu og sjálfsagt eiga fleiri eftir að bætast í hópinn þegar líður á nóttina.
Einn þessara ökumanna var stöðvaður í Hafnarfirði, en sá ók gegn einstefnu og bakkaði síðan á lögreglubifreið.“

