- Auglýsing -
Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, ein af mestu hetjum ársins 2021 hér á Íslandi og mögulega víðar, er miður sín eftir ferðalag til útlanda.

Hún skrapp í ferð til stórborgarinnar New York í Bandaríkjunum.
Þórhildur Gyða segist hafa skemmt sér vel í borginni sem aldrei sefur, en því miður var ferðin afdrifarík; afleiðingar ferðarinnar voru ekki skemmtilegar né góðar fyrir hana né fjölskyldu hennar, heldur þvert á móti.

Gefum Þórhildi Gyðu orðið:
- Auglýsing -
„Jæja, eins gott að það var gaman hjá mér í NYC, því ég nældi mér í VEIRUNA, og núna erum við fjölskyldan komin í einangrun.“

Mannlíf sendir Þórhildi Gyðu og fjölskyldu batakveðjur.

