Fimmtudagur 22. maí, 2025
8.8 C
Reykjavik

Dikta lítur yfir farinn veg

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Dikta var að senda frá sér nýtt lag og heldur stórtónleika 16. júní í Eldborg, Hörpu í tilefni af 20 ára afmæli sveitarinnar og 10 ára afmæli plötu sinnar Get It Together.

Lagið Anniversary er samið af meðlimum Diktu og unnið í samstarfi við Magnús Öder sem sá um upptökustjórn og hljóðblöndun á laginu.

Í maí 2011 fékk Dikta það hlutverk að spila á opnunartónleikum í Eldborgarsal í Hörpu og varð þar með fyrsta rokkhljómsveitin til að spila í tónlistarhúsinu. Þann 16. júní hyggst Dikta snúa aftur í Hörpu og líta yfir farinn veg.

Leikin verða lög af öllum plötum Diktu og segjast hljómsveitarmeðlimir vera fullir tilhlökkunar vegna viðburðarins.

Aðeins er um þessa einu dagsetningu að ræða.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -